Hlutverk
Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar er vettvangur
upplýsinga fyrir íslenska myndlistarmenn, jafnt sem erlenda,
sýningastjóra, safnara, blaðamenn og alla þá
sem eru áhugasamir um íslenska myndlist.
Hlutverk Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar er:
- Að veita upplýsingar um íslenska samtímamyndlist
- Að stuðla að samstarfsverkefnum milli íslenskra og
erlendra listamanna.
- Að styrkja listamenn til verkefna þeirra erlendis
Kynningarstofa
Kynningarstofan í Hafnarstræti 16 er opin mánudaga til
föstudaga á milli kl. 10 og 16. Gestir hafa aðgang að
bókasafni og grunn upplýsingum um yfirstandandi sýningar
og gefst kostur á frekari innsýn í fjölbreytileika
íslenskrar myndlistar í dvd-safni, sem samanstendur af diskum
eftir 11 listamenn í senn. Að auki verður erlendum listastofnunum
boðið að kynna starfsemi sína með svipuðu formi.
Vefsíða
Vefsíða miðstöðvarinnar cia.is er gluggi inn í
íslenskan myndlistarheim. Á síðunni er að finna
grunnupplýsingar um öll söfn á landinu, gallerí
og aðrar myndlistarstofnanir og -félög. Síðan
er tengd við gagnagrunninn umm.is, upplýsingavef um íslenska
myndlist og myndhöfunda. Að auki er þar að finna allar
nauðsynlegar upplýsingar um styrkjakerfi CIA.IS, auk mikilvægra
tengla á erlendar síður.
LIST - Fréttabréf um íslenska myndlist
Fréttabréf um íslenska myndlist
LIST er veftímarit um íslenska myndlist sem kemur út
mánaðarlega. Það er vistað á www.artnews.is
og er sent til áskrifenda um allan heim.
