Umsækjendur
Umsóknir verða ekki teknar gildar nema að þessum forsendum uppfylltum.
a. Umsækjandi skal hafa íslenskt ríkisfang og/eða hafa búið á íslandi a.m.k. undanfarin 5 ár.
b. Umsækjandi skal hafa sýnt verk sín á viðurkenndum sýningarstað.
c. Umsækjandi skal hafa boð um sýningu erlendis (ef sótt er um 1-2) eða útgefanda, gallerí eða stofnun (ef sótt er um 3).
Umsókn skal vera send af listamanni, sýningarstjóra, eða fulltrúa stofnunar sem hyggst sýna verk listamannsins.
Umsóknin er aðeins tekin gild ef Listamaðurinn undirritar umsóknareyðublaðið.
