Aðrir styrkir
Sjóðir Nordic Culture Fund The projects that are granted and have been granted support reflect the
entire cultural life, and includes everything from visual art, theatre,
music and dance to literature and new media. Education, research and transsectorial
projects are also included under what the Fund can support, but these projects
must have a clear connection with art and culture. Nordic Culture Point Reykjavíkurborg Menningarsjóður félagsheimila Hlutverk sjóðsins er að stuðla að menningarstarfi
í félagsheimilum og öðrum þeim stöðum
sem henta menningarstarfi. Sjóðurinn skal stuðla að leikstarfsemi,
tónleikahaldi, listsýningum, bókmenntakynningum og
hvers konar annarri menningarstarfsemi. Menningarsjóðsnefnd úthlutar styrkjum úr sjóðnum
fjórum sinnum á ári. Umsóknarfrestir eru 15.
febrúar, 15. maí, 1. september og 15. nóvember ár
hvert.
http://www.nordiskkulturfond.org
The Nordic Culture Fund is a Nordic body of cooperation whose task is to
support cultural cooperation in the broad sense between the Nordic countries.
The Nordic Culture Fund awards about 25 million Danish kroner (DKK) every
year to cultural projects in the Nordic Region or Nordic projects outside
the Nordic Region.
http://www.kulturkontaktnord.org
The Art and Culture Programme is a three-year frame programme (2007-2009)
which is open for professional and creative artists, agents, producers and
cultural players from all art and cultural sectors.
http://www.reykjavik.is/styrkir
Á hverju ári veitir Reykjavíkurborg styrki til margvíslegra verkefna og
starfsemi. Markmiðið með styrkveitingum er m.a. að styrkja og efna til samstarfs
við félagasamtök, fyrirtæki og einstaklinga um uppbyggilega starfsemi og
þjónustu í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda.
http://www.menntamalaraduneyti.is/afgreidsla/sjodir-og-eydublod/menningarmal/nr/1836
http://www.listamannalaun.is/
Hlutverk Launasjóðs rithöfunda, Launasjóðs myndlistarmanna, Tónskáldasjóðs og Listasjóðs er að veita listamönnum starfslaun og styrki samkvæmt lögum um listamannalaun. Ákvarðanir um veitingu framlaga úr sjóðum þessum skulu gegna þeim tilgangi að efla listsköpun í landinu.
Muggur og Ferðasjóður Muggs
Menningarmálanefnd Reykjavíkur, SÍM og Myndstef
http://www.sim.is
Hlutverk sjóðsins er að styrkja myndlistarmenn til tímabundinnar dvalar erlendis vegna sýningar, vinnustofu eða annars sambærilegs myndlistarverkefnis. Með þeim hætti er sjóðnum ætlað að efla myndlistarstarf í Reykjavík og styrkja ímynd Reykjavíkurborgar sem framsækinnar menningarborgar á heimsvísu.
Einungis Félagar SÍM / Myndstef geta fengið styrk úr sjóðnum.
Úthlutað er í apríl og október, úr báðum sjóðum samtímis.
Verkefnastyrkir Myndstefs
http://www.myndstef.is
Verkefnastyrki skal veita til vinnu að verkefnum á sviði myndhöfunda, svo sem myndlistar, ljósmyndunar, leikmyndagerðar, grafískrar hönnunar, kynningar á byggingarlist, bókagerðar og hvers konar kynningar á myndverkum svo dæmi séu nefnd. Verkefni sem eru á vinnslustigi eða eru langt komin skulu að öðru jöfnu njóta forgangs um styrkveitingu svo og verkefni sem höfundur hefur lokið við.
Rétt til að sækja um verkefnastyrki hafa myndhöfundar í Myndstefi og aðrir starfandi myndhöfundar. Allir félagsmenn SÍM eru aðilar að Myndstefi.
Ferðastyrkir Myndstefs
http://www.myndstef.is
Styrki skal veita til ferða sem umsækjandi fer vegna starfa sinna sem myndhöfundur eða til að leita sér menntunar sem slíkur. Veita má styrki til ferða á ráðstefnur eða til þátttöku á námskeiðum eða vegna sýningarhalds.
Menningarsjóður félagsheimila
http://www.menntamalaraduneyti.is
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að menningarstarfi í félagsheimilum og öðrum
þeim stöðum sem henta menningarstarfi. Sjóðurinn skal stuðla að leikstarfsemi,
tónleikahaldi, listsýningum, bókmenntakynningum og hvers konar annarri menningarstarfsemi.
Sleipnir
Nordic Institute for Contemporary Art
http://www.norden.lt
Hlutverk sjóðsins er að veita ferðastyrki til ungra listamanna, undir 36 ára aldri Úthlutað er tvisvar á ári og rennur umsóknarfrestur út 1. mars og 1. október ár hvert. Umsóknareyðublöð og upplýsingar fást hjá Menntamálaráðuneytinu og á vef NIFCA.
Styrkurinn er einungis veittur einstaklingum.
Menningaráætlun Evrópusambandsins
http://www.evropumenning.is
European Cultural Foundation (ECF) býður listamönnum, skipuleggjendum menningarviðburða og -verkefna, menningarblaðmönnum, þýðendum menningarefnis og þeim er starfa við að skoða og rannsaka menningarmál, að sækja um styrki í sjóðinn.
Viðurkenningar
Heiðursverðlaun Myndstefs
Heiðursverðlaun Myndstefs, myndhöfundasjóðs Íslands eru veitt fyrir afburða framlag til myndlistar, framúrskarandi myndverk eða sýningu. Jafnframt er verðlaununum ætlað að leggja áherslu á ört vaxandi mikilvægi hvers konar myndverka í margmiðlunar- og upplýsingasamfélagi nútímans. Verðlaunin nema einni milljón króna.
Landsbanki Íslands er fjárhagslegur bakhjarl heiðursverðlaunanna og leggur til helming verðlaunafjárins en hinn helmingurinn kemur úr sjóðum Myndstefs. Þá leggur bankinn einnig til 250 þúsund króna aukaverðlaun til að styrkja einstakt framúrskarandi verk myndhöfundar.
Norræni menningarsjóðurinn
http://www.nordiskkulturfond.org
http://www.mrn.is
Sjóðurinn veitir fé til norrænna samstarfsverkefna á sviði rannsókna, menntamála
og menningar. Styrkir eru einnig veittir til samstarfs á alþjóðlegum vettvangi
ef kynna á norræna menningu og menningarstefnu. Fé úr sjóðnum er fyrst og
fremst veitt til tímabundinna verkefna og þurfa a.m.k. þrjú norræn lönd
að eiga hlut að máli.
Úthlutun fer fram tvisvar á ári og rennur umsóknarfrestur út 15. mars og
15. september ár hvert. Umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu en
einnig er hægt að nálgast þau og fá frekari upplýsingar um sjóðinn á vef
hans.
Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn
http://www.norden.se/island.asp
http://www.mrn.is
Fé er veitt til einstakra verkefna, ekki síst ferðastyrkir sem stuðla að gagnkvæmum kynnum og samvinnu. Sjóðsstjórn skipa 6 manns, þrír frá hvoru landi og skiptast löndin á um að hafa á hendi formennsku. Úr sjóðnum er veitt einu sinni á ári, venjulega á útmánuðum og er jafnan auglýst eftir umsóknum í desembermánuði en umsóknarfrestur er oftast til 1. febrúar.
Menningarsjóður Íslands og Finnlands
http://www.hanaholmen.fi/
Stofnaður 1974. Sjóðnum er ætlað að styrkja menningartengsl Íslands og Finnlands. Styrkirnir eru fyrst og fremst veittir einstaklingum, en í sérstökum tilfellum kemur stuðningur við samtök og stofnanir til greina. Umsóknarfrestur rennur út 31. mars ár hvert.
Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku.
Dansk-íslenski sjóðurinn
http://danmark.dk/portal/page?_pageid=34,76778&_dad=portal&_schema=PORTAL
Sjóðnum er ætlað að styrkja menningartengsl Danmerkur og Íslands, íslenskt vísinda- og rannsóknastarf svo og nemendur á háskólastigi.
Thor Thors-sjóðurinn
http://www.iceam.is/thorthors.htm
Thor Thors-sjóðurinn er í vörslu American Scandinavian Foundation. Venjulega er sótt um styrkina á fyrstu mánuðum ársins eftir að þeir hafa verið auglýstir opinberlega og þeim úthlutað að vori. Umsækjendur skulu vera íslenskir ríkisborgarar og hafa lokið námi til fyrstu gráðu á háskálastigi.
Pamela Sanders Brement-sjóðurinn
http://www.iceam.is/haystack.htm
Sjóðurinn er á vegum Íslensk-ameríska félagsins og veitir námsstyrki til náms við Haystack Mountain School of Arts í Bandaríkjunum. Um er að ræða styrki til 2ja og 3ja vikna sumarnámskeiða. Námskeiðin eru haldin í júní, júlí og ágúst. Þau eru framar öðru ætluð starfandi listiðnaðarfólki hvaðanæva að úr heiminum í eftirtöldum greinum: Bókagerð, bútasaumi, glerblæstri og steypu, grafík og grafískri hönnun, járnsmíði og mótun, körfugerð, leirlist, málmsteypu og steypu, pappírsmótun, trévinnu og vefjarlist.
Richard Serra
Richard Serra, Reykjavíkurborg og Listasafn íslands
Sjóðurinn var stofnaður árið 1990 að tilhlutan bandaríska myndhöggvarns Richard Serra í tilefni þess að verk hans "Áfangar" var reist í Viðey. Serra gaf íslensku þjóðinni andvirði verksins en Listahátíð í Reykjavík, Reykjavíkurborg og Listasafn Íslands tóku að sér að reisa það og stofna fyrrgreindan sjóð sem ber nafn hans. Stofnfé sjóðsins, er 100.000- DM. Viðurkenningin er um 400.000 kr. Ekki er sótt í sjóðinn heldur ákvarðar Stjórn sjóðsins hvernig staðið skuli að úthlutun hverju sinni.
The Pollock-Krasner Foundation
http://www.pkf.org/
Sjóðurinn var stofnaður af ekkju Jacksons Pollock, Lee Krisner, sem nú er látin. Sjóðinum er ætlað til að styrkja myndlistarmenn fjárhagslega.
Listasjóður Guðmundu S. Kristinsdóttur
Reykjavíkurborg og Errósafn
http://www.listasafnreykjavikur.is/Hafnarhus/erro/gudmunda.shtml
Markmið Listasjóðsins er að styrkja listakonur með því að veita árlega sérstakt framlag til viðurkenningar og eflingar á listasköpun kvenna. Styrkupphæðin nemur 250.000,- kr. og hefur verið veitt úr sjóðnum frá árinu 1997.
Listasjóður Guðmundu S. Kristinsdóttur frá Miðengi er stofnaður í tilefni af gjöf Erró á andvirði íbúðar að Freyjugötu 34, er Guðmunda hafði arfleitt hann að. Markmið sjóðsins er að styrkja listakonur með því að veita árlega framlag til viðurkenningar og eflingar á listasköpun kvenna. Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun í vörslu borgarsjóðs Reykjavíkur en umsjón með sjóðnum hafa Reykjavíkurborg og Errósafn.
Styrktarsjóður Guðmundu Andrésdóttur
http://www.listasafn.is
Samkvæmt skipulagsskrá Styrktarsjóðs Guðmundu Andrésdóttur er markmið hans "að styrkja og hvetja unga og efnilega myndlistarmenn til náms". Stjórn sjóðsins er skipuð safnráði Listasafns Íslands. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að veita að þessu sinni tveimur ungum listamönnum styrk að upphæð 1.500.000 krónur. Þetta mun vera hæsta styrkveiting sem veitt er einstökum listamönnum á Íslandi.
Listasjóður Dungal
http://www.listasjodur.is/
Sjóðurinn var stofnaður árið 1992 í minningu Baldvins Pálssonar Dungal kaupmanns í Pennanum og eiginkonu hans Margrétar. Sjóðurinn hefur það að markmiði að styrkja unga og efnilega myndlistarmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref á listabrautinni.
Menningarsjóður Akureyrarbæjar
http://www.akureyri.is/
Menningarsjóður Akureyrar er stjórnað af Menningarmálanefnd í umboði bæjarstjórnar. Hlutverk sjóðsins er að styrkja listastarfsemi og aðra menningarstarfsemi á Akureyri með fjárframlögum. Helstu verkefni sjóðsins eru að: styrkja listamenn og fræðimenn og aðra þá sem stjórn sjóðsins ákveður hverju sinni fjármagna kaup og viðhald útilistaverka í bænum fjármagna starfslaun til listamanna.
