Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar styrkir íslenska myndlistarmenn til starfa og sýningahalds erlendis. Listamenn geta sótt um stærri styrki, að hámarki kr. 400 þúsund, fyrir umfangsmikil verkefni áætluð með lengri fyrirvara eða smærri styrki, að hámarki kr. 60 þúsund, vegna umfangsminni verkefna með skemmri fyrirvara.
Stærri styrkir
- Vinnustofudvöl
Styrkur til ferðalaga og/eða til dvalar á vinnustofu.
- Verkefni
Styrkur til verkefna sem fram fara erlendis.
Gerð og undirbúningur verkefna/verka sem fram fara erlendis.
- Útgáfa
Styrkur til útgáfu á efni til kynningar á listamanni, hópi listamanna eða galleríi án gróðasjónarmiða, á alþjóðlegum vettvangi.
Styrkurinn er veittur til útgáfu á hvers kyns sýningarskrám, prentuðum, DVD, CD- ROM, en ekki til vefsíðugerðar.
Umsókn að berast a.m.k. 40 dögum áður en verkefni hefst ( s.s. opnun sýningar eða upphaf ferðar ).
Ef fleiri en einn listamaður sækja um vegna sama verkefnis er fagráðinu heimilt að fjalla um umsóknirnar sem eina. Að hámarki verða veittir tveir styrkir vegna sama verkefnis.
5 stærri styrkir verða veittir á árinu 2010.
Styrkir til verkefna með skemmri fyrirvara
Hluti styrkjafjárins er ætlaður til smærri verkefna.
Þeir styrkir eru að hámarki kr. 60 þúsund
og eru ætlaðir til verkefna með skemmri fyrirvara og er úthlutað
utan auglýstra dagsetninga.
Sjá kaflann “umsækjendur” og umsóknareyðublað.
ATH: Frá og með 1. júni 2010 verður einungis hægt að senda inn rafrænar umsóknir! Umsóknir sendist á info@cia.is með "Styrkir til verkefna með skemmri fyrirvara" sem viðfangsefni.
Umsóknir vegna verkefna með skemmri fyrirvara skulu berast a.m.k. 30 dögum áður en fyrirhugað verkefni hefst.
Ef fleiri en einn listamaður sækir um vegna sama verkefnis, er fagráðinu heimilt að fjalla um umsóknirnar sem eina.
